14 september 2006

:(

Fúl út í sjálfa mig fyrir að leyfa mér allt sem ég leyfði mér um helgina og fékk að finna fyrir því á þriðjudaginn.... 900 gr í plús takk! Ekki sátt og er búin að taka þá ákvörðun að nú er þetta jójó-stand barasta alveg búið... greyið fiskurinn minn hérna fyrir ofan er bara orðinn sjóveikur. Það eru að vísu fullt af alls konar matarboðum og svoleiðis framundan en ég er búin að tilkynna liðinu að ég þurfi að fá vigt lánaða í þeim og ætli að standa mig! Auk þess verður ekkert áfengi fyrr en í desember. Harkan sex komin í gang og hana nú!!

ps. nenni ekki að mæla núna... geri það næst :)