08 ágúst 2006

Vúhúú!!

Mín er komin aftur með krafti!! -3,7 kg sagði vigtin í morgun... hvorki meira né minna :) Átti nú svosem von á ágætis létting þar sem ég var nú tiltölulega nýkomin úr flugi og svona í síðustu vigtun. En þetta kom skemmtilega á óvart og kom Pollýönnunni vel af stað ;) Bara 2,4 kg í tveggja-stafa-tölu og bara 400 gr í að ég eigi bara tuttugu-og-eitthvað kíló eftir! Jibbý!

Jákvæðnin í fyrirrúmi þessa dagana og jafnvel þó ég sé að fara vera með gesti næstu tvær vikurnar ætla ég að reyna mitt allra, allra besta til að léttast á meðan á því stendur. Hef það nú samt að markmiði eins og einhver sagði hérna í commentunum að þyngjast ekki heldur annað hvort standa í stað eða léttast örlítið :)

Vona að það gangi vel hjá ykkur og að sumarið sé nú ekki að fara alltof illa með ykkur. Heyrumst!

9 Comments:

Anonymous Blómálfur said...

Vá, það er aldeilis hraðferð, ég segi bara til hamingju, þú ert dugleg að fara aftur á fullt og árangurinn lætur ekki á sér standa!

09 ágúst, 2006 02:24  
Anonymous Valdís said...

Þetta er flott hjá þér! Ég vildi að ég sæi svona tölur hjá mér. En eins og þú segir, það er jákvæðnin sem gildir :D

10 ágúst, 2006 15:33  
Anonymous Valdís said...

Gleymdi að minnast á það áðan: Mér sýnist tenglarnir á undirsíðurnar ekki virka, gæti verið að þeir séu eitthvað skrítnir? Ég myndi allavegana endilega vilja sjá fyrir og eftir myndir af þér :D Ég mæli allavegana sjálf með því að vera dugleg að taka svoleiðis, maður sér svo mikið betur muninn sem er orðinn á manni. Ég gæti t.d. trúað því að það sjáist góður munur á þér með þessum 17,7 kílóum sem eru farin :D

10 ágúst, 2006 15:36  
Blogger zand said...

Takk, takk. Það er jákvæðnin sem gildir!

Valdís: tenglarnir virka hjá mér amk. Væruð þið sem komið hingað inn til í að tékka hvort þeir virki og láta mig vita með því að setja komment hingað inn? Fyrirfram takk :)

10 ágúst, 2006 17:43  
Anonymous Valdís said...

Þetta virkar fínt núna. Kannski tímabundið sambandsleysi...

10 ágúst, 2006 19:35  
Anonymous Fkarátak said...

Sæl. ég hef stundum verið að heimsækja síðunna þín aán þess að kvitta fyrir. Þú ert búinn að standa þig alveg frábærlega.
Kveðja Fjarátak

11 ágúst, 2006 13:45  
Anonymous Nafnlaus said...

Velkomin aftur dúllan mín vá hvað þú ert dugleg :)))
Gangi þér áfram svona vel.

12 ágúst, 2006 03:04  
Anonymous spekoppur said...

Velkomin aftur dúllan mín vá hvað þú ert dugleg :)))
Gangi þér áfram svona vel.

12 ágúst, 2006 03:06  
Anonymous Nafnlaus said...

Glæsilegt, þú ert sigurvegari!

Endilega bættu mér inn hjá þér og þið hinar líka, er ein splunkuný :)

www.blog.central.is/fitogflott

13 ágúst, 2006 01:33  

Sendu inn athugasemd

<< Home