Fyrsta vigtun eftir sumarfrí
Annars verða örugglega dálítið erfiðir tímar framundan, matarlega séð, þar sem við erum að fá tvær heimsóknir sem hvor um sig stendur í rúma viku. En maður reynir sitt besta, betur getur maður ekki gert :) Ég vona að ykkur gangi vel, ég ætla að reyna að taka blogghring annað hvort í dag eða á morgun og svo er nú farið að þynnast all verulega í hópnum hér til hliðar þannig að ég þarf að fara að finna fleiri til að bæta inná. Ef þú ert ekki inná listanum hér til hliðar en langar að vera það þá bara endilega láttu mig vita í comments :) Bless í bili.

7 Comments:
Gaman að þú sért komin aftur, þú verður enga stund að ná fríinu af þér. Mátt endilega færa mig niður um einn flokk við tækifæri ;)
Velkomin aftur og til hamingju með giftinguna.
Já það er bara að setja í gírinn aftur, borgar sig ekkert að velta sér uppúr þessu.
Gangi þér vel
Kv.
Króna
Þú mátt endilega bæta mér inn á linkasafnið hjá þér. Nafn mitt í netheimum er Blómálfur og ég á tæplega 13 kíló eftir í lokatakmarkið.
Ég er einmitt líka í svona gestastandi þessa dagana og þá er takmarið að þyngjast ekki heldur standa í stað eða léttast um nokkur grömm.
Kær kveðja, Blómálfur
já svona fer sumarið með mann;) en við höldum áfram hressar og kátar ....gangi þér vel:)
Gott að sjá þig aftur :-)
Þú verður enga stund að ná þessu af þér aftur. Mér sýnist á öllu þú vera mjög ákveðin.
Bestu kveðjur, Narnía
Mér finnst þú standa þig rosalega vel. Ég er með link inn á síðuna þína frá mér og þú mátt setja mig inn hjá þér :) Ég þarf að missa 30 kg
http://leggjalong.wordpress.com
kv
Leggjalöng
Hæ skvís og til hamingju með að vera gift kona. Er búin að vera í þessari svaka pásu líka í sumar en ætla að byrja aftur núna í vikunni. Fór í vigtun um daginn, bara til að sjá hvað ég væri búin að borða mikið á mig og jú jú 2,5 kg komin og ég geri ráð fyrir meiru n.k. fimmtudag - well so be it...tökum á því saman í vetur :)
Sendu inn athugasemd
<< Home