Erfitt kvöld!!

Váááááá hvað kvöldið í gær var erfitt! Fórum í gær til Sverige að versla og meðal þess sem þeir feðgar keyptu sér var sitthvor 1,5 kg pokinn af blandi í poka! Strákurinn hans Júlla er hjá okkur þessa dagana og þar sem að hann er í fríi fékk hann að kaupa fullt af nammi (sem á sko að endast honum út dvölina) og pabbinn nýtti sér sko tækifærið og keypti sér líka.
Svo í gærkvöldi sátum við hér og horfðum á sjónvarpið eftir að hafa verið úti að grilla og svona. Þeir sátu sitthvoru megin við mit með sitthvorn risastóra nammipokann og lyktin var að gera útaf við mig! Ég var alveg að fara að fá mér! Ákvað þá að kíkja á netið og kíkja á fyrir og eftir myndirnar mínar og eftir það tímdi ég ekki að fá mér nammi (mæli með þessari aðferð við nammilöngun).... ég SKAL aldrei verða svona aftur eins og ég er á fyrstu myndinni. Að sökkva sér í nammiát yrði væntanlega bara fyrsta skrefið í áttina að því. Ég stóð mig því í gærkvöldi og fékk mér ekkert nammi og er ótrúlega stolt af sjálfri mér..... en man, o man var það erfitt!!

3 Comments:
Vá æði mikið rosalega varstu dugleg það þarf sko mikinn aga til að geta þetta.
Gangi þér áfram svona vel hetja:)
Vá hvað þú ert sterk. Ég ætla að kíkja á þína síðu þegar nammilöngunin hellist yfir mig :-)
Kveðja, Narnía
hæ skvís, takk fyrir kommentið. Er byrjuð á aftur og nú er það harkan sex eftir þetta djöfulla sumarfrí hehe.. Nú er bara um að gera að vera duglegar að peppa hvor aðra upp!
kv. Guðrún
Sendu inn athugasemd
<< Home