19 nóvember 2006

Endurskoðun markmiða


Notaði haustfríið mitt í að endurskoða markmiðin mín varðandi átakið og komst eiginlega að því að ég var ekki lengur að gera þetta fyrir sjálfa mig heldur meira til að verða á undan einhverjum öðrum eða verða mjórri en einhver. Að sjálfsögðu gengur þetta ekkert upp til lengri tíma þannig og því setti ég mér ný markmið og þar að auki fékk ég kallinn til að setja sér samstæð markmið.

Í tengslum við þessa nýju markmiðasetningu hef ég ákveðið að notast ekki lengur við þessa vefsíðu heldur ætla ég að treysta meira á stuðning vina minna og fjölskyldu. Ég mun að sjálfsögðu einnig notast við DDV-spjallið... það er snilld :) En ég vil þakka öllum þeim fjölmörgu stuðninginn sem kommentuðu hérna inni og hvöttu mig áfram. Þið eruð algjör yndi! Gangi ykkur rosalega vel í öllum sem þið takið ykkur fyrir hendur.

10 nóvember 2006

Er ekki hætt!

Tók mér bara smá haustfrí... var alveg að springa á limminu og ákvað bara að taka mér 2 vikna frí og koma svo aftur með trukki. Haustfríið stendur fram á næsta þriðjudagskvöld en þá fara tengdó aftur til Íslands. Skrifa meira þegar fríið er búið.

01 nóvember 2006

Vigtun

Jæja þá er kominn enn einn vigtunardagurinn og þrátt fyrir ítrekað svindl í vikunni kom vigtin mér skemmtilega á óvart og sýndi létting :) 900 gr fóru þessa vikuna sem ég gæti bara ekki verið sáttari við.

Mér hefur gengið eitthvað voðalega illa að halda mér í gírnum þessa dagana, reyndar ekki á daginn heldur á kvöldin. Mér tekst yfirleitt að halda mér 100% alveg þangað til ég er búin með allan matinn minn.... þá fara nammipúkarnir að taka völdin og það er ekki að hjálpa til að eiga slatta af íslensku nammi uppí skáp sem tengdó kom með með sér. En freistingarnar munu alltaf vera til staðar... þetta er bara spurningin um að standast þær. Koma svo!! Ég get þetta alveg... bara gleymi því stundum ;) Á 25 ára afmæli eftir rétt rúman mánuð og ÆTLA að vera komin með 25 kíló fyrir þann dag! ÆTLA-ÆTLA-ÆTLA!

24 október 2006

Afleiðingarnar....

...af svindlinu voru ekki skemmtilegar. Aldrei má maður nú leyfa sér neitt. Plús 1,2 kíló takk!! Skrifa það hér og pæli svo ekki í því meir! Amk plús að hafa ekki farið aftur upp í póstnúmerin ;) Næsta vika verður vonandi betri. Annars er markmiðið fyrir þessa viku bara að standa í stað þar sem tengdó er að koma í heimsókn og þau verða í nokkra daga. En ég ætla að standa mig! Vona að ykkur gangi betur :)

22 október 2006

Svindl, svindl og svínarí!

Já ég var sko ekki nógu dugleg í gærkvöldi, sósa, brúnaðar kartöflur, ekki nægt grænmeti, ostakaka (að vísu nokkuð healthy svona skyr-ostakaka en samt), ávaxtabjór og örlítið snakk. Allt þetta fór ofan í mig í gærkvöldi. Þetta var ekki fyrirfram ákveðið svindl og ég get bara sjálfri mér um kennt og geri það líka. Svekkjandi af því að ég steig á vigtina, bara svona að gamni, í gærmorgun og hún var sko á góðri leið niður. Ótrúlegt hvað maður getur eyðilagt fyrir sjálfum sér með græðginni. The upside er amk það að það var rosa gaman :) The downside verður vigtin á þriðjudaginn :(

17 október 2006

Mætt aftur!

Jæja þá er maður loksins kominn aftur með netið. Var að verða vitlaus á að vera netlaus... ótrúlegt hvað maður er háður þessu. Anyways þá hefur nú bara gengið alveg ágætlega hjá mér þrátt fyrir flutninga og svona... allt niður á við :D Er eitthvað voðalega andlaus núna þannig að ég skrifa bara seinna eitthvað meir. Gangi ykkur vel :)

ps. setti inn nýjar tölur og svo þarf ég nú að fara að taka nýjar myndir líka, er það ekki?

26 september 2006

Vigtun.... vúhúú!!!


Vigtun í morgun og hvað gerði mín.... fór niður í TVEGGJA STAFA TÖLU TAKK!!! Að vísu rétt svo, en það er samt tveggja stafa tala :D Þar fyrir utan náði ég þar með að brjóta 20 kílóa múrinn :D :D

Gæti ekki verið sáttari við sjálfa mig og þetta heldur manni svo sannarlega við efnið :) Að vísu erum við að flytja um næstu helgi þannig að það gæti orðið dálítið erfitt að halda sér 100% en ég mun reyna mitt besta.... god knows að ég vil ekki fara aftur upp í póstnúmerin!

ps. vegna flutninganna mun ég líklegast ekkert getað skrifað hérna inn fyrr en eftir rúma viku eða svo :( ...þið bara vitið af því og haldið ekkert að ég sé að gefast upp eða neitt ;)